Stolið!!!
14.1.2010 | 09:44
Ég bendi fólki á netfangið info@beardhead.com sem er gefið upp á heimasíðu þeirra, þar sem þeir þurfa nú orðið að samþykkja 'vini' sína á facebook. Gott samt að fara á síðuna þeirra og tilkynna hana til Facebook til að þeim sé ekki vært að koma sér fyrir þar!
Stöndum með íslenskri hönnun!
|
Íslensku skegghúfunni stolið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Konur og karla í skóla!
26.11.2008 | 17:03
Ég er sammála því að ráða eigi inn bæði kynin í bankana enda hefur sýnt sig, vil ég meina, að karlarnir ráða ekki við þetta einir og verða örugglega betri með konur í hópnum. Að því sögðu þá er ég mest fylgjandi því að hæft fólk verði ráðið!
En mér er meira í mun að kanna hvað verður um okkur sem erum atvinnulaus um þessar stundir og veit ég að það eru margir bankamennirnir og -konurnar. Hafi þetta fólk áhuga á námi þá hef ég slæmar fréttir enda sá ég það sem ákveðna lausn á mínum málum.
Ég komst þó að annarri niðurstöðu og fékk það mig til að senda bréf til ráðherra mennta- og atvinnumála sem ég og gerði fyrir helgi. Einnig sendi ég það til Egils Helgasonar og til Morgunblaðisins ef svo illa vildi til að það týndist í öllum þeim pósti sem ég veit að flæðir inn til þessara ágætu ráðherra þessa dagana.
Greinin var síðan birt í Morgunblaðinu í dag, en af því að ég er ekki áskrifandi af Morgunblaðinu og geri ráð fyrir að þið séuð það mörg ekki heldur setti ég bréfið hérna og leyfi ykkur að lesa og kommenta ef þið sjáið ykkur knúin til þess.
Góðar stundir.
|
Konur og karla í bankana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tækifæri fyrir þá sem hafa dug
26.10.2008 | 14:17
Jæja,
Þá er námskeiðið í netviðskiptum komið af stað. Við erum komin með síðuna eins og hún á að vera og nú er bara mál fyrir þá sem hafa áhuga að lesa vel það sem kemur fram á síðunni og/eða skrá sig á póstlistann og fá fyrstu 6 kennslustundirnar sendar fríar.
Ég skil svo sem alveg ef fólk er með efasemdir, ég var svo sem ekkert öðruvísi. En ef fólk er ekki einu sinni til í að kynna sér málið þá er lítið sem ég get gert fyrir fólk.
Ég vona að þið skoðið alla vega síðuna mína sem flest og farið í gegnum fyrstu kennslurnar.
Kveðja,
Ása Björg
Þitt tækifæri til að byggja þér betri framtíð!
Kynntu þér málið, þér að kostnaðarlausu!
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ísland stórasta land í heimi?
17.10.2008 | 13:58
Ég sé að fleirum en mér er farið að leiðast þetta niðurbrot og kvartsemi sem hefur viðgengist hérna. Ok, við skitum á okkur; bankamenn, ráðamenn og almenningur (að því marki sem okkur var hleypt að).
Það var búið að vara við þessu, einhverjir sáu þetta fyrir, við vildum ekki hlusta.
Tónlistin var of hátt stillt í partýinu til að við heyrðum hróp dyravarðanna hrópa "eldur, eldur" á meðan helstu Dj-ar landsins þeyttu skífunum og við sauðsvartur almúginn kyrjuðum "Money, money, money. Must be funny, in a ritch mans world".
En hverjum eigum við að kenna um? Okkur sjálfum fyrir að fylgjast ekki með? Eða dj-unum fyrir að spila of hátt?
Á þessu stigi málsins þegar við stöndum í dauðaþögninni og hlustum á húsið brenna er það kannski ekki það sem öllu máli skiptir. Nú þurfum við að fara að leita að lausnum.
1)Hvar eru neyðarútgangar?
2)Hvernig ætlum við að ráða niðurlögum eldsins?
Hverjum er um að kenna má deila um, og verður gert í fyllingur tímans, en við skulum ekki gera það inni í brennandi húsinu.
Ég held að þessi HUGSPRETTA sé nákvæmlega það sem til þarf til að hrista fólk saman, við getum endalaust velt okkur upp úr okkar eigin eymd en okkur mun öllum líða mikið betur þegar við getum byrjað að gera eitthvað í málunum.
If you're not a part of the solution, you're part of the problem!
Þýðist: Ef þú ert ekki partur af lausninni ertu partur af vandamálinum!
Hvorum partinum tilheyrir þú?
Ása Björg
|
Ræða um möguleika Íslands og ný tækifæri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott að vinna hjá Norðuráli
17.10.2008 | 13:25
Þetta þykir mér til fyrirmyndar að fyrirtæki taki sig til og deili gróðanum með starfsfólki sínu. Það væri óskandi að aðrir myndu taka þetta sér til fyrirmyndar til framtíðar.
Það hefur hingað til ekki verið í tísku hjá fyrirtækjum að deila gróðanum með nokkrum öðrum en helstu hluthöfum og hafa þeir fitnað eftir því og lyst þeirra eftir meiru aðeins magnast... græðgisvæðingin að tröllríða flestum.
Mér hlýnaði um hjartarætur að lesa þessa frétt og ekki veitir af góðum fréttum þessa dagana.
Ég óska starfsmönnum og fyrirtækinu til hamingju með að deila gleðinni!
Ása Björg
Námskeið í netviðskiptum, hefst 20. október.
Fáðu fyrstu 5 tímana fría án skuldbindinga!
|
Starfsmenn Norðuráls fá auka mánaðarlaun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég tek undir...
14.10.2008 | 09:53
Líklegt er að þegar rykmökkurinn hverfur þá standi eftir að lífeyrissjóðakerfi okkar Íslendinga er það stöndugasta í heimi. Það er sárt að segja en ef fer sem horfið úti í heimi þá munu margir eldri borgarar víðsvegar ekki hafa mikið undir sér. Þetta lífeyrissjóðsmódel væri hægt að selja öðrum þjóðum og aðstoða við uppsetningu þess.
Við megum náttúrulega ekki gleyma í barlóminum þessa dagana að sjálfsögðu hefur verið gert margt gott hérna á undanförnum árum og áratugum. Nú er okkar að taka stöðuna og gera okkur grein fyrir því hvar verðmæti okkar liggja.
Ása Björg
|
Ástandið verra en þjóðargjaldþrot |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úrdráttur
13.10.2008 | 17:54
Fyrir þá sem ekki hafa þolinmæði til að lesa allt viðtalið þá finnst mér persónulega vera það sem mestu máli skiptir
„Já, við erum að gera nákvæmlega eins og bandaríkjamenn gera,“ sagði Davíð. „Við skiptum bönkunum upp í innlenda og erlenda starfsemi. Við tökum eigið féð að meginefni til og látum það fylgja erlendu starsfeminni. Þannig að erlendu kröfuhafarnir fá meira í sinni hlut en sem nemur innlendu starfseminni.“ Erlendir aðilar ættu ekki að geta sagt að þeir væru verr staddir eftir þessa aðgerð en áður. Erlendu skuldirnar yrðu síðan gerðar upp og erlendu kröfuhafarnir myndu, því miður, ekki fá nema kannski 5-15% upp í þessar kröfur.
Mér finnst þetta kannski segja það sem segja þarf!
Ása Björg
Námskeið í netviðskiptum. Fyrstu 5 kennslustundirnar fríar og án skuldbindinga!
|
Hvað sagði Davíð? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki skráð ennþá...
13.10.2008 | 16:41
Ég er ekki ein af þessum 3.142 sem eru skráðir atvinnulausir, en eins og málin eru að þróast er þess ekki langt að bíða. Ég óska þjáningarsystkynum mínum góðs gengis í að ganga þennan veg. Það er á engann hátt skemmtileg skrefin inn á atvinnuleysisskrifstofuna það hef ég sjálf fengið að reyna þó að ekki hafi reynt á það ennþá í þetta skiptið.
Atvinnumöguleikar mínar hafa þó á þessum tveimur mánuðum síðan mér var sagt upp versnað umtalsvert og ég á alveg eins von á því að þurfa að leita liðsinnis þess góða fólks.
Það jákvæðasta í stöðunni fyrir mig er að ég er nú þegar búin að missa vinnuna og þarf því í öllu falli ekki að hafa áhyggjur af því!
Er nú samt að reyna að hjálpa mér sjálf og breikka sjóndeildarhringinn og ég hvet aðra í sömu stöðu til að smella á linkinn hérna að neðann!
Ása Björg
Fyrstu 5 kennslustundirnar fríar og án allra skuldbindinga!
|
3.143 skráður á atvinnuleysisskrá |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er verið að vinna í þessu?
11.10.2008 | 20:50
Nú er manni spurn eru opnar einhverjar diplómatískar leiðir til Noregs? Erum við í viðræðum við þá um aðstoð?
Ég held að við ættum að skoða þau tækifæri sem okkur bjóðast í fjármögnum frá hinum norðurlöndunum sérstaklega Noregi þar sem að það stendur utan Evrópusambandsins.
Eins verður mjög áhugavert að sjá tillögur frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum ef við erum í raun að fara að biðla til þeirra eins og orðrómurinn segir. Skv. Gylfa Zoega í Markaðinu með BIH í morgun þá ættum við ekki að þurfa að óttast þá skilmála sem slíkri aðstoð myndu fylgja. Nú vantar bara að fá þetta staðfest: Ætlum við að sækja um hjálp til AG?
Ég trúi því að ef við fáum AG með okkur auk Noregs þá ættum við vonandi að fara að geta sjá smá glætu... það eina sem við getum gert núna er að vona að svo sé!
Ása Björg
Kynntu þér námskeið í netviðskiptum!
|
Norðmenn óttast ítök Rússa hér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tími rafmagnsbíla loks að renna upp?
10.10.2008 | 13:30
Nú ríður á að við horfum til framtíðar og förum að alvöru að vinna að því að rafmagnsvæða íslenska bílaflotann. Ég veit að það er ekki að fara að gerast nú í hringiðu þessa storms en um leið og við förum að tína saman brotin þá verðum við að setja það á oddinn að við verðum sjálfbærari en áður.
Ef við lærum eitthvað af þessu þá held ég að það verði að við getum án mikilla fórna orðið sjálfum okkur næg á mörgum sviðum og eitt af því er að losa okkur undan oki olíunnar.
Mig langar líka að benda á þessa frábæru grein 'Hvað nú? Hér koma tíu ráð til bjargar.' eftir Jón G. Hauksson. Margt gott í þessari grein.
Ása Björg
|
Dregur úr bílaumferð í Reykjavík |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 26.11.2008 kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


Emma Vilhjálmsdóttir
Georg P Sveinbjörnsson
Hans Haraldsson
Heimskyr
Júlíus Garðar Júlíusson
Lára Hanna Einarsdóttir
S i g u r ð u r Sigurðarson
Sigríður Laufey Einarsdóttir
Skvísumamman
Sverrir Þorleifsson
Ágúst H Bjarnason
Bjarni Harðarson
Dofri Hermannsson
Eyþór Arnalds
Friðrik Þór Guðmundsson
Gísli Tryggvason
Grefill
Guðrún Sæmundsdóttir
Jón Axel Ólafsson
Margrét Guðjónsdóttir
Ómar Ragnarsson
Páll Gröndal
Púkinn
